Notkunarsvið
Hentar fyrir flestar tegundir af starfsemi
Fasteignarekstur
Maintx er reynd lausn fyrir fyrirtæki til þess að annast viðhald á byggingum, svo sem verksmiðjum, skrifstofubyggingum sjúkrahúsum og fjölbýlishúsum.
Opinber starfsemi
Maintx hentrar afar vel fyrir viðhaldsstjórnun hjá opinberum aðilum, svo sem menntunar, heilbrigðisþjónustu, flugvöllum, höfnum, vegum og margt annað.
Framleiðsla á vörum
Maintx gerir þér kleift að sinna viðhaldi á tækjum og áhöldum sem eru notuð við framleiðslu vara. Þetta eru t.d. ökutæki, vélasamstæður, færibönd, lyftarar o.fl.
Floti af tækjum
Maintx er öflug lausn til þess að stjórna viðhaldi á flota hvers konar farartækjum sem öll þurfa skipulagt og öruggt viðhald á réttum tíma.
Innviðir
Maintx er mjög sniðið að þörfum rekstraraðila sem veita margvíslega þjónustu innviða á sviði orku, vatns, kapla í jörðu o.fl. Allt þetta krefst mikils eftirlits og viðhalds.
Strætó ánægður notandi Maintx
Strætó þjónar tæplega 70% af íbúum landsins með vel yfir 100 strætisvögnum. Starfsemin notar Maintx viðhaldsstjórnunarkerfið til þess að stýra viðhaldi og varahlutalager vegna tækja og búnaðar sem fylgir starfseminni.
Notkunin felur m.a. í sér að búið er að tengja og samþætta Maintx og skynjara í tækjunum í þeim tilgangi að auka fyrirbyggjandi viðhald og rekstraröryggi með meiri sjálfvirkni.
Að öllu jöfnu er tiltölulega auðvelt að tengja og samþætta Maintx við ýmsan hugbúnað svo sem eftirlitskerfi, mælitæki og bókhald. Við bjóðum ýmsar lausnir til þess að tengja Maintx við mismunandi kerfi/tæki.