App fyrir viðhald
Auðveldari umsjón og framkvæmd viðhalds
Maintx appið er unnt að nota hvar og hvenær sem er.
Lykilþættir appsins
Viðhaldsbeiðni
Skoða eign (tæki)
Skrá varahluti á verk
Skjöl og myndir
Loka verki
Varahlutir á lager
Varahlutir tengdir við tæki
Mælitæki
Appið að fullu samhæft við aðalkerfi Maintx
Mikill ávinningur fylgir notkun appsins
Styttri viðbragðstími
Þegar tilkynning um bilun berst úr appinu eða verkbeiðni er uppfærð þá fá starfsmenn í viðhaldsdeild tilkynningu um það og geta þannig forgangsraðað áríðandi verkum. Þá er aðgangur að viðhaldssögu allra eigna til þess að auðvelda úrvinnslu verksins.
Minni niðritími eigna
Viðhaldsaðilar geta framkvæmt í appinu all reglubundið fyrirbyggjandi viðhald á eignum og haldið utan um framvinduna, þó svo að nettengingu vanti. Þegar nettenging kemst aftur á þá uppfærast allar upplýsingar sjálfkrafa.
Skilvirkari tilkynningar
Hver sem er í fyrirtækinu getur með appinu sent tilkynningu um bilun (eða ábendingu) á eign til viðhaldsdeildar með skýringum, myndum og/eða myndböndum ef við á. Tilkynningunni er síðan breytt í verkbeiðni og úthlutað á viðhaldsaðila.
Betra kostnaðaryfirlit
Viðhaldsstarfsmenn halda utan um tíma og kostnað frá því að verkbeiðni er opnuð eða einhverjir varahlutir eru notaðir. Appið veitir fyrirtækinu nákvæmar upplýsingar um umfang allra viðhaldsverkefna.