Maintx er heildarlausn fyrir viðhaldsstjórnun
Hugbúnaðarlausn sem hentar fyrir allar viðhaldsaðferðir, eftirlit og verkefni.
Viðhald eigna
Maintx hjálpar þér að hafa allar eignir þínar alltaf í áreiðanlegu ástandi og tilbúnar til notkunar þegar þess er þörf.
Stjórnun á viðhaldi
Maintx hjálpar þér að stýra öllu viðhaldi eigna með áherslu á skipulagðar og fyrirbyggjandi aðgerðir.
Umsjón varahluta
Maintx hjálpar þér að stýra innkaupum, birgðahaldi og notkun á varahlutum vegna viðhalds.
Mikill ávinningur fylgir Maintx
Maintx skilar þér lægri kostnaði, meira öryggi og betri stjórnun á verkefnum, vinnuálagi og þjónustustigi.
Fjármunir
Maintx hjálpar þér að lækka viðhaldskostnað um 15 - 30% og lengja líftíma eigna
Tími
Maintx hjálpar þér að lágmarka óvæntar og dýrar rekstrarstöðvanir og auka framleiðni
Öryggi
Maintx hjálpar þér að auka öryggi í framleiðslu, sem og starfsmanna og viðskiptavina
Dæmi um notendur Maintx
Icefresh (Þýskalandi)
Fiskvinnslufyrirtækið Icefresh í Frankfurt notar Maintx fyrir stjórnun á viðhaldi á framleiðslutækjum o.fl.
Icelandair Ground Service
Flugþjónustudeild Icelandair notar Maintx til að stýra viðhaldi og varahlutalager vegna tækja og búnaðar sem fylgir starfseminni.
Exorka orkuverið í Þýskalandi ánægður notandi Maintx
Eftir ítarlega úttekt og samanburð milli viðhaldsstjórnunarkerfa varð Maintx fyrir valinu af hálfu Exorka:
Val/mat á kerfinu
"Eftir ítarlega skoðun á ýmsum viðhaldskerfum var niðurstaðan sú að velja Maintx þar sem kerfið uppfyllti allar kröfur Exorka."
Innleiðing á kerfinu
"Uppsetning og innleiðing á kerfinu var mjög einföld og gerði Exorka kleift að hagnýta sér kosti Maintx nánast frá fyrsta degi"
Rekstur
"Maintx hefur algjörlega staðið undir væntingum Exorka m.a. vegna þess hversu notendavænt það er og vegna söfnunar á upplýsingum."
Þjónusta
"Þjónusta Maintx hefur verið hnökralaus. Starfsmenn hafa verið einstaklega liðlegir og tilbúnir til að aðstoða Exorka á öllum stigum."
Tilbúið íslenskt kerfi. Enginn falinn kostnaður!
Maintx er fullbúin stafræn lausn tilbúin til notkunar eftir uppsetningu. Ef þú ert að leita að öflugu en um leið þægilegu viðhaldsstjórnunarkerfi með þægilegu og öflugu appi, þá er þetta rétta lausnin! Maintx er eitt vinsælasta hugbúnaðarkerfið fyrir viðhaldsstjórnun á Íslandi í dag.